|
|
|
|
| |
Heim : Hugbúnaður : Gæðastjórnun
Almennt um FOCAL Gæðastjórnun

Þeir sem unnið hafa við gæðastjórnun þekkja hversu tímafrekt getur verið að halda utan um uppfærslu gæðahandbóka, úrvinnslu kvartana og verkefnastjórnun svo eitthvað sé nefnt
Við hjá Hópvinnukerfum ehf. bjóðum þeim sem vinna að gæðastjórnun öflug hjálpartæki sem spara þann tíma sem fer í uppsetningu skjala og leitun í handbókum og gera alla vinnu skilvirkari. Á þann hátt geta gæðastjórar einbeitt sér að málum sem bæta gæðakerfi fyrirtækisins og auka þar með arðsemi þeirra. | 
| 
| 
|

FOCAL Gæðastjórnun:
Gæðahandbók
Lotus Notes, Vefrápari og SharePoint
FOCAL Gæðahandbók hefur verið á markaðnum frá 1994 og er notuð hjá fjölda fyrirtækja í öllum atvinnugreinum. Kerfið er ætlað til að halda utan um stefnuskjöl, verklagsreglur, vinnulýsingar, uppskriftir, leiðbeiningar, eyðublöð svo dæmi séu nefnd. Hægt er að nota teikniforrit eins og Visio fyrir flæðiritsreikningar og Word eða eigin ritvinnslu kerfisins fyrir texta.
|
Ábendingar
Lotus Notes og SharePoint
Ábendingakerfið er hannað til að halda utan um allar ábendingar og kvartanir sem berast frá viðskiptavinum og starfsmönnum um bæði það sem gott þykir í starfsemi fyrirtækja og stofnana svo og það sem betur mætti fara. Þegar unnið er úr ábendingum sem skráðar hafa verið verður til sjálfvirk flokkun um tíðni og dreifingu þeirra. FOCAL býður bæði Ábendingakerfi fyrir Lotus Notes og SharePoint frá Microsoft.
|
Úttektir
Lotus Notes, Vefrápari og SharePoint
Er sértækt kerfi til að halda utan um innri og ytri úttektir og uppfyllir ýtrustu kröfur um framkvæmd úttekta. Gerð er úttektaráætlun, úttektarskýrsla sett upp, frávik skráð og sett í úrbótaferil og frávikum og skýrslunni lokað með rafrænum undirskriftum. Kerfið er fjöltyngt, vefhæft, gefur greinargóða yfirsýn og tryggir skilvirkan frágang úttekta og frávika.
|
Tækjaskrá
Lotus Notes
FOCAL Tækjaskrá heldur utan um upplýsingar er varða tæki og aðrar eignir fyrirtækisins. Í Tækjaskrá er hægt að skrá tölvur, prentara, síma, bíla o.m.fl. Sá ávinningur sem hlýst af notkun FOCAL Tækjaskráar er að stjórnendur fyrirtækja hafa góða yfirsýn yfir tæki og eignir fyrirtækisins ásamt nákvæmu yfirliti yfir allan kostnað vegna bilana og viðhalds. Hægt er að fylgjast með því hvaða tæki eru biluð og hvaða tæki eru í viðgerð. Einnig er skráð inn í kerfið upplýsingar um kaup tækis, s.s. söluaðila, ábyrgð, kaupverð, afskriftir, raunverð og hvenær tækið var keypt.
|
Fyrir frekari upplýsingar sendið fyrirspurn til:
| 
|
FOCAL Software & Consulting - Hlíðasmára 14 - 201 Kópavogur - Iceland - Tel: +354 5 400 900 focal@focal.is
Prentvæn útgáfa |
 Senda í tölvupósti |
|
|
|