|
|
|
|
| |
Heim : Fréttir : Ráðgjöf í skjalastjórnun fyrir fyrirtæki og stofnanir
Ráðgjöf í skjalastjórnun fyrir fyrirtæki og stofnanir
FOCAL ráðgjöf hefur síðustu þrjú ár veitt tugi stofnana og fyrirtækja ráðgjöf við innleiðingu á heildrænni skjalastjórnun. FOCAL ráðgjafar hafa verkstýrt, framkvæmt og leiðbeint stofnunum og fyrirtækjum við að uppfylla alþjóðlegar og lagalegar kröfur varðandi skjalastjórnun hvort sem þau eru á byrjunarstigi í skjalastjórnun eða komin þó nokkuð áleiðis í því ferli.
Ráðgjöfin felur í sér m.a. 1. Mat á núverandi stöðu fyrirtækja/ stofnana við að uppfylla alþjóðlegar kröfur um skjalastjórn og upplýsingaöryggi byggt á ISO 15489 og/eða ISO 27001. 2. Tillögur að úrbótum samkvæmt niðurstöðu þess stöðumats sem framkvæmt var 3, Aðstoð við innleiðingu á skjalastefnu, markmiðasetningu og leiðum til að tryggja varðveislu og öryggi skjala 4. Kortlagning á rekstraferlum stofnana / fyrirtækja til undirbúnings við gerð sameiginlegs skjalaflokkunarkerfis og skráningu ferla og skjala. 5, Gerð sameiginlegs skjalaflokkunakerfis til að auðvelda meðhöndlun, geymslu, eyðingu og endurheimt skjala. 6. Gerð verklagsreglna og vinnulýsinga á rekstraferlum fyrirtækjanna og stofnana svo og verklagsreglu um skjalastýringu og endurskoðun á geymsluumhverfi , aðgangsstýringu, afritunarferli o.fl. 7. Innleiðing m.a. á skjalakerfum, gæða-, úttektar- og ábendingakerfum. 9. Markaðssetningu meðal starfsmanna á breyttum vinnubrögðum, stefnum, skjalaflokkunarkerfum, skjala- og gæðakerfum. 9. Viðhald þekkingar með endurmenntun, nýliðaþjálfun, námskeiðum eða örnámskeiðum samkvæmt verklagi hvers fyrirtækis eða stofnunar. 10. Aðstoð við skipulag og frágang eldri gagna
(skráð 15. sept. 2010)
Til baka
Prentvæn útgáfa |
 Senda í tölvupósti |
 Senda á Facebook |
|
|