Heim
Fréttir
Starfsumsókn
Fyrirspurnir
Ábendingar
Verkbeiðnir
Styrkbeiðnir
Leita á vef
Ítarleg leit
RSS
Nýjustu fréttir
Skoða eldri fréttir...
Heim
:
Fréttir
: Gerð verklagsreglna I
Gerð verklagsreglna I
Námskeiðið er miðað að þörfum allra sem koma að gæðastjórnun þ.e. gæðastjóra, gæðatengla, yfirmanna eða annarra starfsmanna sem koma að vinnu við gerð handbóka, verklagsreglna eða vinnuleiðbeininga. Gerð verklagsreglna nýtist á mörgum sviðum fyrirtækis, óháð kerfisnotkun og tryggir samræmd og stöðluð vinnubrögð í samræmi við skipulögð vinnuferli fyrirtækisins.
Námskeið 07. maí kl. 09:00-13:00
Á námskeiðinu eru kennd formleg og viðurkennd vinnubrögð, farið yfir aðferðafræði gæðastjórnunar ásamt hagnýtum atriðum við innleiðingu á verklagsreglum og vinnulýsingum.
* Ferilhugsun, hvað er ferill
* Flæðirit, hvernig á að skilgreina feril frá upphafi til enda
* Kynnt Cross Functional flæðirit
* Skilgreint inntak, úttak og ábyrgð í flæðiriti
* Farið yfir hvað getur farið úrskeiðis í ferli
* Ritun verklagsreglu, form og tilvísun í ISO- staðal
* Gerðar æfingar í ritun verklagsreglna með flæðiritum
* Innleiðing verklagsreglna
Afboðun á námskeið þarf að berast með minnst þriggja sólahringa fyrirvara. Berist afboðun síðar þarf að greiða hálft námskeiðsgjald..
Öll námskeið eða námskeiðahluta er hægt að sérpanta fyrir einstök fyrirtæki og stofnanir.
ATH. atvinnulausum bjóðum við 30% afslátt af námskeiðgjöldum..
Skráning hér
(skráð 5. maí. 2009)
Til baka
Prentvæn útgáfa
Senda í tölvupósti
Senda á Facebook