Heim Fréttir Starfsumsókn Fyrirspurnir Ábendingar Verkbeiðnir Styrkbeiðnir English


Leita á vef
Ítarleg leit

Nýjustu fréttir
 
Heim : Fréttayfirlit

Fréttir

16.03.2010
Fréttir frá Gæðastjórnun 2010 - ráðstefnan 11. mars 2010
Ráðstefnan Gæðastjórnun 2010 - Nýjar reglur í samræmismati og eftirliti var vel sótt af áhugsömum þátttakendum úr öllum geirum atvinnulífsins enda gæðastjórnun lykill að velgengni allra fyrirtækja burtséð frá starfsemi. Erindi fyrirlesara voru ólík en fjölluðu öll um gæðstjórnun, Guðmundur gæðastjóri Landsvirkjunar fjallaði um uppbyggingu gæðastjórnunar hjá Landsvirkjun og þróun í gæðastýringu almennt. Árni framkvæmdastjóri BSI á Íslandi fór yfir tölur um aukningu vottaðra fyrirtækja í heiminum en þau eru nú um ein milljón og hefur mesta aukningin verið í umhverfisstjórnunarstöðlum síðustu árin. Kristín gæðastjóri rannsóknarsviðs LSH lýsti svo vel hver væri ávinningurinn af gæðastjórnuninni og hvers vegna faggilding skipti.....    meira
03.03.2010
Gæðastjórnun í ráðuneytunum
Öll ráðuneytin hafa nú fest kaup á FOCAL Gæðahandbók og Umhverfisráðuneytið að auki á FOCAL Ábendingakerfinu og Úttektakerfinu. Þá eru ráðuneytin eitt af öðru að samræma verklag við gerð verklagsreglna og vinnulýsinga og hafa þá fengið FOCAL til að halda námskeiðið "Gerð Verklagsreglna" fyrir starfsmenn. Umhverfisráðuneytið hefur sett mark sitt á gæðakerfi samkvæmt ISO 9001:2008 og ISO 14001:2004 í umhverfisstjórnun og er FOCAL ráðgjafi þeirra í þeirri vinnu. FOCAL Software & Consulting býður upp á fjölmörg námskeið þar sem kenndar eru viðurkenndar aðferðir í gæða-, skjala– og mannauðsstjórnun. Námskeiðin eru bæði stöðluð og sérsniðin að þörfum fyrirtækis/stofnunar. Námskeið á.....    meira
03.03.2010
Gæða- og skjalastjórnun hjá Loftorku og Norðurál
Loftorka í Borgarnesi og Norðurál í Hvalfirði eru hvorutveggja fyrirtæki sem FOCAL starfar nú fyrir á sviði gæða- og skjalamála, þar sem fyrirtækin ætla sér að uppfylla nýjar kröfur á þessum sviðum. FOCAL Software & Consulting býður upp á lausnir (hugbúnað, ráðgjöf, námskeið) á sviði gæðastjórnunar, skjalastjórnunar og mannauðsstjórnunar. Ráðgjafar FOCAL Consulting búa yfir sérþekkingu og reynslu hver á sínu sviði og beita alþjóðlega viðurkenndum stöðlum í ráðgjöfinni, s.s. ISO 9001:2008 í gæðastjórnun, ISO 14001:2004 í umhverfisstjórnun, ISO 15489:2001 í skjalastjórnun og ISO 27001:2005 í upplýsinga– og öryggisstjórnun. FOCAL Software & Consulting býður upp á fjölmörg námskeið þar sem kenndar.....    meira
03.03.2010
Garðabær innleiðir PhotoServer fyrir stafrænar myndir
Garðabær eins og margar aðrar stofnanir og fyrirtæki eiga fjölda stafrænna mynda sem hafa ekki verið vistaðar í einu miðlægu skjalakerfi fyrir stafrænar myndir. Nú hefur Garðabær gert samning við FOCAL um innleiðingu á FOCAL PhotoServer til þess að endurskipuleggja skjalastjórnun mynda í eigu sveitafélagsins. Um FOCAL PhotoServer Með FOCAL PhotoServer er auðvelt að setja inn myndir þar sem kerfið er vefhæft og eru því allar myndir og myndaraðir settar inn í gegnum Internet Explorer. Kerfið les upplýsingar úr myndavélinni og leyfir síðan innskráningu á lýsigögnum eins og hverjum og einum hentar. Hægt er að setja myndir inn á nánast.....    meira
24.02.2010
Fréttir af PhotoServer kynningunni fyrir stafrænar myndi
Kynningin í síðustu viku heppnaðist einkar vel og voru gestir mjög ánægðir með kynninguna og þá ekki síst þá möguleika sem kerfið býður upp á. Sérstaklega vakti athygli hvernig viðskiptavinir nota PhotoServer með mismunandi hætti og sveigjanleiki kerfisins þegar myndir eru settar inn, teknar út og hinir fjöldamörgu tengingarmöguleikar kerfisins. Til hamingju Kristín V. Richardsdóttir hjá Landsvirkjun sem vann Canon ljósmyndaprentarann á PhotoServer kynningunni! Dregið var úr innsettum myndum í FOCAL PhotoServer á slóðinni http://www.focal.is/photo og var Kristín Richardsdóttir hjá Landsvirkjun sú heppna. Það var sérlega ánægjulegt að afhenda henni verðlaunin því hún sagðist aldrei vinna neitt! Prófaðu endilega að.....    meira
28.01.2010
Úttektir heildarlausn
FOCAL ÚTTEKTAKERFI er sértækt kerfi til að halda utan um innri og ytri úttektir og uppfyllir ýtrustu kröfur um framkvæmd úttekta. Gerð er úttektaráætlun, úttektarskýrsla sett upp, frávik skráð og sett í úrbótaferil og frávikum og skýrslunni lokað með rafrænum undirskriftum. Kerfið er fjöltyngt, vefhæft, gefur greinargóða yfirsýn og tryggir skilvirkan frágang úttekta og frávika. FOCAL Úttektir 3.1 er komin út: Helstu nýjungar: – Vefviðmót á heildarferli úttekta og frávika – Nýr ritill með fjölda ritvinnslumöguleika – Nýtt og notendavænna útlit – Sjónarhorn f. tilvísanir í kröfur – Tungumálaviðmót, þrjú tungumál NÁMSKEIÐ Í ÚTTEKTUM Markmið námskeiðsins er að kynna.....    meira
19.01.2010
Grunnþekking á hraða sem hentar.
Námskeið Gæðastjórnunarskóla FOCAL eru hugsuð á þann hátt að þátttakendur, hver á sínum hraða, geti byggt upp grunnþekkingu á þeim þáttum sem nauðsynlegt er að hafa til að innleiða aukið gagnsæi með gæða- og skjalastjórnun eða aukið færni sína á einhverju einu sviði, s.s. verkefnastjórnun eða mannauðsstjórnun. Fyrir hverja eru námskeiðin? Námskeiðin henta öllum þeim sem þurfa að auka færni sína í verkefna-, skjala-, gæða- eða mannauðsstjórnun. Við viljum taka fram að alls ekki er nauðsynlegt að vera starfandi hjá einhverju fyrirtæki eða stofnun til þess að sækja námskeið hjá skólanum og eru nemendur, atvinnulausir og heimavinnandi alveg sérstaklega velkomnir.....    meira
23.10.2009
Hádegisverðarfundur: Er gagn af stöðlum í breyttu rekstrarumhverfi?-ISO: Öflug aðferðarfræði í stjórnun og forystu-
Fimmtudaginn 29. október kl. 11.50 – 13.00 á Grand Hóteli Breyttar aðstæður Við breyttar aðstæður í rekstri fyrirtækja hefur skapast þörf fyrir endurskoðun á aðferðafræði stjórnunar og á fundinum munu nokkrir valinnkunnir stjórnendur hafa framsögu. Dagskrá fundarins 1. Eyjólfur Árni Rafnsson forstjóri Mannvits Erindi: Er stjórnun kvöð og kostnaður? 2. Einar Hannesson framkvæmdastjóri frá IGS Erindi: Innleiðing og áhrif gæðastjórnunarkerfis í starfsemi Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli. 3. Halldór Magnússon framkvæmdastjóri þjónustuferlis Marels Erindi: Vottuð vinnuferli í samþættingarvinnu Marels og nýrra fyrirtækja sem hafa verið keypt. Fundurinn er hádegisverðarfundur og haldinn á Grand Hóteli. Verð kr. 2.900  - munið að merkja við:.....    meira
25.09.2009
Fundur um skjalastjórn vakti mikinn áhuga
Skjalastjórnun hjá Snorra Sturlusyni, Hallgrími Péturssyni og Halldóri Laxness Vilhjálmur Bjarnason lektor og framkvæmdastjóri Samtaka Fjárfesta Þjóðin á menningu og sögu vegna skjalastjórnunar, Halldór Kiljan Laxness hélt vel utan um öll þau gögn sem lágu að baki ritverka hans sem hafði trúlega áhrif á að hann fékk Nóbelsverðlaunin, sagði Vilhjálmur Bjarnason meðal annars í setningarræðu sinni á morgunverðarfundi FOCAL um Öryggi og varðveislu gagna og skjala. Ábyrgð starfsfólks í meðhöndlun skjala og upplýsinga Svala RúnSigurðardóttir, framkvæmdastjóri ráðgjafasviðs FOCAL Lykillinn liggur aðallega í tvennu, að selja hugmyndina hvers vegna starfsmenn eigi að vista skjöl og hvernig og hins vegar í þjálfun.....    meira
15.09.2009
Morgunverðarfundur - "Öryggi og varðveisla gagna og skjala - viðurkenndar aðferðir"
Dagskrá: 08:30 Fundurinn hefst með léttum veitingum 1. Skjalastjórnun hjá Snorra Sturlusyni, Hallgrími Péturssyni og Halldóri Laxness. Vilhjálmur Bjarnason, lektor við H.Í. og framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta 2. Ábyrgð starfsfólks í meðhöndlun skjala og upplýsinga. Svala Rún Sigurðardóttir, forstöðumaður ráðgjafasviðs FOCAL 3. Gagnsæi kemur með skilvirkri rafrænni skjalastjórn. Þuríður Guðmundsdóttir, gæða- og skjalastjóri hjá Kauphöll Íslands 4. Að þekkja og fylgja kröfum. Hvernig gerum við það? Er skjalastjórnun með gæða- og öryggisstjórnun svarið? Erla Konný Óskarsdóttir, ráðgjafi hjá FOCAL 5. Gagnsæi í lagalegum skilningi. Vigdís Eva Líndal, lögfræðingur 10:00 Fundarslit [Skráning hér
24.08.2009
Gegnsæi er lykilorðið
Gæðastjórnunarskóli FOCAL Software & Consulting (Hópvinnukerfa ehf.) býður reglulega upp á margvísleg námskeið sem öll styðja við innleiðingu á auknu gegnsæi í stjórnun rekstrarheilda. Kristín Björnsdóttir, rekstrarhagfræðingur og ráðgjafi hjá FOCAL, segir að gegnsæi sé lykilorðið í gæða- og skjalastjórnun og að FOCAL hjálpi fyrirtækjum og stofnunum að koma á auknu gegnsæi í stjórnun fyrirtækja og stofnana með hugbúnaði, ráðgjöf eða þjálfun með námskeiðunum í FOCAL Gæðastjórnunarskólanum. „Það er lögð mikil áhersla á gegnsæi þessa dagana, það að aðgengi að gögnum og upplýsingum sé einfalt, verklag í takt við lög og reglur og vilja fyrirtækja um hvernig á að stjórna......    meira
13.05.2009
Gerð verklagsreglna II - Framhaldsnámskeið
Námskeiðið er framhald af Gerð verklagsreglna I og ætlað þeim er hafa sótt það námskeið. Markmiðið með námskeiðinu er að nemendur fái betri innsýn inn í: Hvernig eru verklagsreglur og vinnulýsingar notaðar til að skrá og stýra ferlum. Hvernig á að innleiða verklagsreglur og vinnulýsingar. Hvernig á að reka ferla og viðhalda þeim. Hvernig er gæðakerfi notað til að viðhalda ferlum. Hvernig á að mæla frammistöðu ferla (árangur). Hvernig eru ferlar notaðir til að ná betri árangri og hagræðingu í rekstri og þjónustu Afboðun á námskeið þarf að berast með minnst þriggja sólahringa fyrirvara. Berist afboðun síðar þarf að greiða.....    meira
05.05.2009
Gerð verklagsreglna I
Námskeiðið er miðað að þörfum allra sem koma að gæðastjórnun þ.e. gæðastjóra, gæðatengla, yfirmanna eða annarra starfsmanna sem koma að vinnu við gerð handbóka, verklagsreglna eða vinnuleiðbeininga. Gerð verklagsreglna nýtist á mörgum sviðum fyrirtækis, óháð kerfisnotkun og tryggir samræmd og stöðluð vinnubrögð í samræmi við skipulögð vinnuferli fyrirtækisins. Námskeið 07. maí kl. 09:00-13:00 Á námskeiðinu eru kennd formleg og viðurkennd vinnubrögð, farið yfir aðferðafræði gæðastjórnunar ásamt hagnýtum atriðum við innleiðingu á verklagsreglum og vinnulýsingum. * Ferilhugsun, hvað er ferill * Flæðirit, hvernig á að skilgreina feril frá upphafi til enda * Kynnt Cross Functional flæðirit * Skilgreint inntak, úttak og.....    meira
30.04.2009
FOCAL Gæðahandbókarkerfi 06. maí 13.00-16.00
Kennt er hvernig hægt er að byggja upp rafræna gæðahandbók og útbúa ný gæðaskjöl. Sýnt er hvernig hægt er að setja verklagsreglur upp í flæðirit og tengja vinnulýsingar við þau. Þá er kennt hvernig tengja má gæðaskjöl við önnur skjöl, skráningarkerfi eða reglugerðir á heimasíðum opinberra aðila. Kennt er hvernig hópar geta unnið saman að gerð gæðaskjala, hvernig samþykktarferli virkar og skjöl eru gefin út þar á meðal á vefsvæði. Ritvinnslumöguleikar eru einnig kynntir. Afboðun á námskeið þarf að berast með minnst þriggja sólahringa fyrirvara. Berist afboðun síðar þarf að greiða hálft námskeiðsgjald.. Öll námskeið eða námskeiðahluta er hægt að.....    meira
30.04.2009
FOCAL Skjalakerfi - Skjalastjórnun 06. maí kl. 09.00-12.00
Þetta námskeið er sérstaklega ætlað skjalastjórum sem hafa umsjón og eftirlit með skjalayklum, pökkun og grisjun skjala. Námskeiðið hentar ekki almennum notendum að skjalakerfinu. Kennd er gerð geymsluáætlana, hvernig flokkun, pökkun, varðveisla og eyðing skjala á sér stað í kerfinu. Notkun efnisorðalista, atriðisorðaskrár o.fl. Hvernig hægt er að endurheimta virk og óvirk skjöl í kerfinu eftir mismunandi leiðum. Afboðun á námskeið þarf að berast með minnst þriggja sólahringa fyrirvara. Berist afboðun síðar þarf að greiða hálft námskeiðsgjald.. Öll námskeið eða námskeiðahluta er hægt að sérpanta fyrir einstök fyrirtæki og stofnanir. ATH. atvinnulausum bjóðum við 30% afslátt af námskeiðgjöldum.. Skráning.....    meira
27.03.2009
Stöðumat skjalamála á kr. 290.000* - Nú er rétti tíminn til að taka á skjalamálum!
Skjölin okkar eru verðmæti og meginafurð flestra fyrirtækja og stofnana í dag. Því viljum við vekja athygli þína á tilboði í skjalaráðgjöf sem FOCAL er nú með í gangi. Við bjóðum ykkur að meta stöðu skipulagsheildarinnar á skjalastjórnun með gátlista samkvæmt kröfum alþjóðlega skjalastjórnunarstaðalsins, ISO 15489. Þetta tilboð er fyrir öll fyrirtæki og stofnanir óháð hversu langt þau eru komin í ferli skjalastjórnunar. Skráðar verða tölfræðilegar niðurstöður og tillögur að úrbótum fyrir hverja kröfu fyrir sig. Tilgangur:
  • Draga fram þau atriði í skjalastjórnun sem skapa áhættu vegna ófullnægjandi skjalastjórnunar.
  • Leggja fram tillögur að úrbótum til að ná fram heildrænni.....    meira
  • 17.03.2009
    "Ég er viss um að það var hér allt í gær?" Ráðstefna um skjalastjórnun með gæðastjórnun - gagnsæi og rekjanleiki.
    Ráðstefnan verður haldin 24. mars frá kl. 09:00-12:00 á Grand Hótel Reykjavík. Ráðstefnunni er skipt í tvo hluta og fjallar sá fyrri um skjalastjórnun með gæðastjórnun, en seinni hlutinn er hefst kl. 11:00 um hugbúnað til skjala- og ferlastjórnunar og geta þátttakendur setið annan eða báða hluta ráðstefnunnar. Ráðstefnan er í boði FOCAL og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Skráning hér Dagskráin verður sem hér segir: Fundarstjóri: Svanfríður Franklínsdóttir, Deildarstjóri Listasafn Íslands Setning: Dr. Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Prófessor í upplýsinga- og skjalastjórn, Háskóli Íslands 9:10 Skjalastjórnun á erfiðum tímum Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá Stöfum Lífeyrissjóði 9:25Týndi hlekkurinn Jón B. Stefánsson, skólameistari,.....    meira
    10.03.2009
    Dagskrá Lotusphere Comes to you
    IBM Lotusphere comes to you 2009 Ráðstefna Nýherja í Salnum Kópavogi 19. mars Á IBM Lotusphere 2009 verða kynnt til sögunnar helstu nýjungar og framtíðarsýn IBM fyrir Lotus hópvinnulausnir. IBM heldur samskonar ráðstefnur víða um heim þar sem viðskiptavinum og helstu samstarfsaðilum er boðið að kynna sér hvað er framundan í IBM Lotus hópvinnulausnum. IBM Lotusphere 2009 verður haldin á Íslandi þann 19. mars. Sjá nánar um dagskrá ráðstefnunnar. Skráðu þig hér. Umfjöllunarefni: Ótvíræðir kostir Lotus Notes fyrir farsímann Hvernig er hægt að tengja saman ólík samskiptatæki með Unified Communications Hagræðing með Lotus Sametime rauntímaspjalli Ókeypis Lotus hugbúnaður frá.....    meira
    12.02.2009
    Kynning á Ábendingakerfum f. SharePoint og Lotus Notes og viðtöl við ráðgjafa.
    Kynnt verða Ábendingakerfi bæði fyrir SharePoint og Lotus Notes á þessari hádegiskynningu, en kerfin eru sérhönnuð til þess að halda utan um innri og ytri ábendingar og kvartanir/frávik. Kerfin halda utan um heildarferil slíkra skráninga er hefst með skráningu í einfalt vefform á innra eða ytra neti. Kerfin halda utan um allar flokkanir, hverjar úrbæturnar voru (hægt er að halda utan um kostnað) og hvernig málinu var fylgt eftir. Kerfin uppfylla allar kröfur ISO staðalsins um slíkar skráningar. Sýnd verða dæmi um notkun. Boðið er upp á léttar hádegisveitingar og er þátttaka ókeypis. Ráðgjafar FOCAL verða á staðnum að kynningu.....    meira
    03.02.2009
    Hádegiskynning þann 11. febrúar n.k. kl. 12.00 í sal Læknafélagsins, Hlíðasmára 8. 4. hæð.
    Kynnt verða Gæðahandbókarkerfi fyrir SharePoint, Vef og Notes, en kerfin eru til þess að halda utan um samþykktarferli og útgáfuferli stefnuskjala, verklagsreglna (verkferla), vinnulýsinga og gátlista á innra- eða ytra neti. Eins og öll FOCAL kerfi þá uppfyllir kerfið kröfur gæðastaðla um rekjanleika og aðgangsstýringar. Sýnd verða dæmi um notkun. Boðið er upp á léttar hádegisveitingar og er þátttaka ókeypis. Ávallt er hægt að sérpanta kynningar á FOCAL kerfum.
    20.01.2009
    Skjalastjórnun daglega í fréttunum
    Skjalastjórnun og gæðamál hafa sjaldan verið jafn mikið í umræðunni og frá því í október, því nánast allar fréttir snúast um rannsókn á gögnum, niðurstöður slíkra rannsókna eða um að verklagsreglur skorti eða þær hafi verið brotnar. Nú þá voru kröfur á opinber fyrirtæki auknar þegar stjórnvöld gáfu út leiðbeiningar um stjórnunarhætti opinberra fyrirtækja, þar sem krafa er um rekjanleika, gegnsæki og öryggi gagna. FOCAL hefur því séð enn ríkari ástæðu en áður til að leggja áherslu á hugbúnað, ráðgjöf og fræðslu á sviði skjalastjórnunar. Nýlegar upplýsingar um skjalastjórnun á heimasíðu FOCAL eru: Tengill í myndskeið um notkun Meridio með.....    meira
    14.01.2009
    Autonomy sérfræðingar í skjalastjórnun
    Hugbúnaðarfyrirtækið Autonomy er stærsta hugbúnaðarfyrirtæki Evrópu í dag og vex hratt í kreppunni, en eweek.com fjallaði nýverið um vaxtamöguleika Autonomy og skýrir út hvers vegna. Öll fréttin Autonomy fyrirtækið er einstakt enda sópar það að sér verðlaunum og jákvæðri umfjöllun um allan heim. Hugbúnaður fyrirtækisins uppfyllir ávallt ítrustu kröfur og er oftar en ekki fremstur í sínum flokki á heimsvísu enda sýnir viðskiptavinalistinn og "case studies" að viðskiptavinir Autonomy hafa náð miklum árangri og arðsemi af innleiðingu hugbúnaðar frá þeim. En hvað gerir Autonomy svo sérstakt ? IDOL: Leit í öllum gögnum fyrirtækisins ( Pan-enterprise search) IDOL leitarvélina frá.....    meira
    15.12.2008
    Tækniskólinn semur um skjalaráðgjöf og Meridio skjalakerfið
    Tækniskólinn skrifaði undir samning við FOCAL í morgun um vinnu við skjalaráðgjöf og innleiðingu á Meridio Skjalakerfinu fyrir Microsoft og SharePoint. Tækniskólinn - Skóli Atvinnulífsins samanstendur af 13 skólum og þar af tveimur sem eru vottaðir samkvæmt gæðakerfi IS0 9000:2001. Það er FOCAL mikil ánægja að bjóða Tækniskólann velkominn í hóp okkar kröftugu og faglegu viðskiptavina. Úttekt samkvæmt ISO 15489 Skjalaráðgjöf FOCAL samanstendur af 5 þrepum, en eitt þeirra er úttekt samkvæmt ISO 15489 skjalastjórnunarstaðlinum. Slík formleg úttekt gerir viðkomandi rekstrareiningu mögulegt að setja sér markmið á sviði skjalastjórnunar út frá núverandi stöðu og fylgjast síðan með framgangi með.....    meira
    15.12.2008
    Meridio vinnur RECORDS MANAGEMENT PRODUCT OF THE YEAR AWARD
    Um milljón notendur eru á Meridio sem er skjalastjórnunarlausn Autonomy fyrirtækisins, sagði Mike Lynch, framkvæmdastjóri Autonomy. Við erum yfir okkur ánægð að DM Magazine hefur valið Autonomy til þessarar viðurkenningar sem er mikilvæg viðbót við langan lista viðurkenninga sem fyrirtækið hefur fengið, þar á meðal "U.S. Federal Government´s SmartBUY contract for Electronic Document and Records Management software" sagði Mike Lynch. Sjá fréttina
    26.11.2008
    Tilboð til notenda FOCAL Mannauðskerfa
    FOCAL býður nú notendum FOCAL Mannauðskerfa eftirfarandi tilboð sem gilda til áramóta: 1. Sérkjör á FOCAL Mannauðskerfum - 50% afsláttur Undir Mannauðskerfi FOCAL falla: Starfsmannakerfi, Ráðningakerfi, Fréttakerfi og Viðvera. 2. Kynning á FOCAL Mannauðskerfum Hádegiskynning á FOCAL Starfsmannakerfi, Ráðningakerfi, Fréttakerfi og Viðveru þann 11.12.2008. 3. Tveir fyrir einn á námskeið FOCAL Gæðastjórnunarskólans - Starfsmannakerfi  6.3 nýjungar 13.01.2008 - Starfsþróunarsamtöl 15.01.2008 Skráningu og frekari upplýsingar um námskeiðin er að finna á: http://www.focal.is/skraning 4. Farðu yfir stöðuna með FOCAL Ráðgjafa Gríptu tækifærið og ræddu við mannauðs– og gæðaráðgjafa í tvær klst. án endurgjalds og skuldbindinga. FOCAL býður upp á ráðgjöf við.....    meira
    26.11.2008
    Stöðumat á skjalamálum á kr. 290.000*
    Nú er rétti tíminn til að taka á skjalamálum! Skjölin okkar eru verðmæti og meginafurð flestra fyrirtækja og stofnana í dag.  Því viljum við vekja athygli þína á tilboði í skjalaráðgjöf sem FOCAL býður upp á fram til áramóta. Við bjóðum ykkur að meta stöðu skipulagsheildarinnar á skjalastjórnun með gátlista samkvæmt kröfum alþjóðlega skjalastjórnunarstaðalsins, ISO 15489.  Þetta tilboð er fyrir öll fyrirtæki og stofnanir óháð hversu langt þau eru komin í ferli skjalastjórnunar. Skráðar verða tölfræðilegar niðurstöður og tillögur að úrbótum fyrir hverja kröfu fyrir sig. Tilgangur: ¨ Draga fram þau atriði í skjalastjórnun sem skapa áhættu vegna ófullnægjandi.....    meira
    19.11.2008
    ,,Gæðastjórnun fyrir alla" -Tilboðspakki í Gæðastjórnun
    Tilboðspakki í Gæðastjórnun á 490.000 kr. * Pakkinn inniheldur: - Ráðgjöf í 25 klst. - Námskeið fyrir tvo í: Gæðahandbókarkerfinu, Gerð og skipulagi handbóka og Gerð Verklagsreglna I. - Gæðahandbókarkerfi Hægt er að velja eitt af þremur Gæðahandbókarkerfum: 1. FOCAL Gæðahandbók fyrir Lotus Notes 2. FOCAL VefHandbók fyrir vefrápara 3. FOCAL.Point Gæðahandbók fyrir SharePoint * Verð er án uppsetningar á Gæðahandbók og VSK. Þau fyrirtæki sem ganga frá samningi lok mars njóta afsláttarkjaranna, þó vinnan hefjist ekki fyrir þann tíma Nú er rétti tíminn til að taka upp gæðastjórnun - Hafðu samband strax Símanúmerið okkar er 5400 900 og netfangið.....    meira
    12.11.2008
    Námskeið í notkun FOCAL PhotoServer
    Á námskeiðinu er farið yfir innsetningu mynda í FOCAL Photoserver gegnum vef og með notkun PhotoServer Uploder. Kenndar eru leiðir til að sækja og nota myndir í Photoserver og farið verður yfir stillingar og möguleika í Admin (lotus notes) viðmóti.

    Fjallað er um vistun stafrænna mynda meðal annars í sambandi við skráningu og flokkun þeirra. Farið er yfir hvernig myndi eru settar inn í Photoserver gegnum vefviðmót og hvernig myndir og myndaraðir eru settar inn með client hugbúnaði, Photoserver Uploder. Farið er yfir hvernig leitað er að myndum í vefviðmóti, hvernig hægt er að vinna með þær, breyta upplýsingum á vef.....
       meira
    10.11.2008
    FOCAL Starfsmannkerfi 6.3 - ný utgáfa af kerfinu
    Helstu nýjungar og lagfæringar: - Hlunnindi og búnaður í vörslu starfsmanna - Nýr reitur fyrir gjafir og umbun sem starfsmaður hefur fengið - Nýr hnappur í sjónarhorninu SKIPULAG - Sjálfvirk stofnun forma fyrir starfsmannasamtöl - Námskeiðsyfirlit til prentunar - Total í sjónarhornum undir starfsmannasamtölum - Ekki leyfilegt að hafa tvö starfsmannaspjöld á sömu kennitölu Hefur þú áhuga á að bæta við kerfum í Mannauðstjórnun? 50% afsláttur á Ráðningakerfi, Fréttakerfi, Viðveru og uppsetningu á kerfunum. Tilboð gildir til áramóta.
    04.11.2008
    FOCAL Gæðahandbók 6.2- ný útgáfa af kerfinu
    Helstu nýjungar: – Gjörbreytt vefútlit fyrir innra og ytra net – Hægt er að senda krækju í útgefið skjal á vef – Nýtt sjónarhorn sem sýnir útgefin skjöl í tímaröð - nýjast birtist efst – Hægt er að skoða vinnubók í vefskoðara – Skjalnúmer, útgáfunúmer, útgáfudagur, ábyrgðarmaður prentast í haus – Hægt er að breyta stöðu á breytingartillögum – Hægt er að fara í ,,búa til skjalsnið" beint úr gæðahandbókinni – Prentun af vef hefur verið bætt – Fjöltyngt Þarftu aðstoð við að byggja upp handbækur ? Flestir notendur FOCAL Gæðahandbókarkerfisins nýta sér flæðirit fyrir verklagsreglur og vinnulýsingar. FOCAL Gæðastjórnunarskólinn.....    meira



    Prentvæn útgáfa

    Senda í tölvupósti