FOCALShare Gæðahandbók
FOCALShare Gæðhandbók SharePoint lausn sem heldur utan um og birtir verklagsreglur og önnur gæðaskjöl. Í handbókina má setja öll skjöl sem við koma gæðakerfi eða skipulagi fyrirtækis eða stofnunar allt frá stefnuskjölum til gátlista. Hægt er að tengja skjöl rafrænt saman sem tryggir að ávallt séu rétt skjöl í notkun. Hægt er að hengja teikningar og gögn úr öðrum kerfum við skjöl. Auðvelt er að kalla fram yfirlit yfir skjöl og birta á innra neti. Öll leit er aðgengileg og hægt er að skipuleggja notendahandbækur með þarfir ólíkra deilda í huga.
Gæðahandbókin hentar öllum fyrirtækjum og stofnunum sem þurfa að halda utan um leiðbeiningar, vinnulýsingar eða verklagsreglur. Hana má byggja upp eftir kaflaskiptingu hvaða staðals sem er.
Meðal notenda FOCAL Gæðahandbókar í Lotus Notes eru: Velferðarsvið og Skipulags- og Byggingasvið Reykjavíkurborgar, Fiskistofa, Fjármálaeftirlitið, Neytendastofa, Siglingastofnun, IGS, Lyfjaþróun, Intrum, VA arkitektar, Droplaugarstaðir, LSH, FSA, VGK- Hönnun, Línuhönnun, Landsvirkjun, SWEDAC - sænska faggildingarstofnunin og fjöldi annarra fyrirtækja og stofnana.
HELSTU KOSTIR
Áminning um endurskoðun
Sjálfvirkt efnisyfirlit og rafrænn rekjanleiki
Geymir eldri útgáfur gæðaskjala
Tilvísanir í staðla, lög og reglugerðir
Uppfyllir kröfur allra helstu alþjóðlegu staðla