FOCAL Birgjamat
Birgjamatið er grunnur þar sem haldið er saman upplýsingum um birgja fyrirtækisins, reynslu af samskiptum við þá sem og reynslu annarra fyrirtækja sem vitneskja er um.
Helstu eiginleikar FOCAL Birgjamats:
- Allar upplýsingar um birgja fyrirtækisins eru geymdar á einum aðgengilegum stað
- Auðvelt er að koma upp samþykktum birgjalista
- Hægt er að halda utan um frammistöðumat birgja fyrir einstök verkefni
- Auðvelt er að útiloka birgja sem ekki standast kröfur fyrirtækisins
- Aðgengileg skrá birgja í nafnaröð, eftir stöðu og reynslu
Hvers vegna FOCAL Birgjamat?
Birgjamatið hentar öllum fyrirtækjum sem vilja halda utan um þá birgja sem fyrirtækið er í samskiptum við og útiloka þá sem ekki reynast vel. Með þessu móti er hægt að koma upp birgjaskrá sem eingöngu inniheldur birgja sem fyrirtækið samþykkir.
Fyrir frekari upplýsingar sendið fyrirspurn til: focal@focal.is