FOCAL Ábendingakerfi
Sértækt kerfi fyrir innri og ytri ábendingar
Ábendingakerfið er hannað til að halda utan um allar ábendingar og kvartanir sem berast frá viðskiptavinum og starfsmönnum um bæði það sem gott þykir í starfsemi fyrirtækja og stofnana svo og það sem betur mætti fara. Þegar unnið er úr ábendingum sem skráðar hafa verið verður til sjálfvirk flokkun um tíðni og dreifingu þeirra. FOCAL býður bæði Ábendingakerfi fyrir Lotus Notes og SharePoint frá Microsoft.
Einfalt vefhæft skráningarblað
Kerfið samanstendur af vefhæfu skráningarblaði, innbyggðu vinnuferli, sjálfvirkri eftirfylgni, gagnagrunni er heldur utan um gögnin og úrvinnslu skráninga. Með kerfinu fylgir FOCAL Tölfræði sem gerir grafíska úrvinnslu auðveldari. Flest fyrirtæki þekkja það vandamál að sömu ábendingar og fyrirspurnir koma upp aftur og aftur. Með nákvæmari skráningu atvika gefst möguleiki á að skoða ferli síendurtekinna atvika og þannig átta sig á hvernig hægt er að koma í veg fyrir þau.
Helstu eiginleikar FOCAL Ábendingakerfis:
- Öll skráning fer í gegnum vef
- Uppfyllir alþjóðlega staðla
- Rafræn samskipti við viðskiptavini
- Auðveld úrvinnsla ábendinga
- Hægt að skrá og fylgjast með tíðni atvika
- Úrvinnsla gefur upplýsingar um tíðni og dreifingu atvika
- Rafrænn rekjanleiki
Fyrir frekari upplýsingar sendið fyrirspurn til: focal@focal.is
